Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: 15. september 2026
Ræktum vitið er hvatningarátak sem hefur það að markmiði að efla lærdómsmenningu á íslenskum vinnustöðum. Þátttakendur skrá símenntun sína á vefnum atak.raektumvitid.is og safna stigum fyrir vinnustaðinn sinn. Í þessari stefnu kemur fram hvaða persónuupplýsingar eru unnar í tengslum við átakið, í hvaða tilgangi og hver réttindi þín eru.
Vinnslan fer fram í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðina (ESB) 2016/679 (GDPR).
1. Ábyrgðaraðilar
Ræktum vitið er samstarfsverkefni eftirtalinna aðila, sem eru sameiginlegir ábyrgðaraðilar vinnslunnar:
- VR, 690269-2019, Kringlunni 7, 103 Reykjavík
- Landssamband íslenskra verzlunarmanna (LÍV), 420269-0489, Kringlunni 7, 103 Reykjavík
- Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ), 570599-2249, Borgartún 35, 105 Reykjavík
Þú getur beint öllum fyrirspurnum og beiðnum vegna persónuverndar á eitt netfang, hallo@raektumvitid.is, og þeim verður svarað fyrir hönd allra ábyrgðaraðila.
2. Hvaða upplýsingum er safnað?
Við söfnum eingöngu þeim upplýsingum sem þarf til að átakið gangi upp:
- Aðgangsupplýsingar: netfang og nafn sem þú velur að birta.
- Vinnustaður: hvaða vinnustað þú tilheyrir og hvort þú ert stjórnandi vinnustaðarins á vefnum.
- Skráður lærdómur: tegund símenntunar, tímalengd, dagsetning og athugasemdir sem þú skrifar sjálf/ur.
- Árangur: stig og aðrar viðurkenningar sem þú vinnur þér inn.
- Tæknilegar upplýsingar: innskráningarkóðar og tæknilegar annálaskrár (log) sem verða til við notkun vefsins og eru nauðsynlegar fyrir rekstur hans og öryggi.
Við biðjum ekki um og söfnum ekki viðkvæmum persónuupplýsingum. Við biðjum þig að skrifa ekki slíkar upplýsingar, eða upplýsingar um aðra einstaklinga, í athugasemdir.
3. Tilgangur og heimild vinnslu
| Tilgangur | Heimild |
|---|---|
| Að stofna og viðhalda aðgangi þínum og gera þér kleift að taka þátt | Samningur, þ.e. þátttaka þín samkvæmt skilmálum átaksins (b-liður 1. mgr. 6. gr. GDPR) |
| Að reikna stig, birta stigatöflu og veita viðurkenningar | Samningur (b-liður) |
| Að senda þér tölvupóst um átakið, t.d. innskráningarkóða, áminningar og samantekt í lok átaksins | Samningur (innskráningarkóðar) og lögmætir hagsmunir af því að halda þátttakendum upplýstum (f-liður) |
| Að taka saman ópersónugreinanlega tölfræði um átakið | Lögmætir hagsmunir (f-liður) |
| Að tryggja öryggi vefsins og koma í veg fyrir misnotkun | Lögmætir hagsmunir (f-liður) |
Þú getur afþakkað áminningar og kynningarpóst hvenær sem er með hlekk neðst í hverjum pósti. Innskráningarkóðar eru áfram sendir, því án þeirra er ekki hægt að skrá sig inn.
4. Hver sér upplýsingarnar þínar?
- Samstarfsfólk á þínum vinnustað sér nafn þitt og framlag þitt til vinnustaðarins.
- Stjórnendur vinnustaðarins á vefnum geta auk þess samþykkt beiðnir um aðild og fjarlægt þátttakendur úr vinnustaðnum.
- Opinber stigatafla sýnir eingöngu nöfn vinnustaða, stærðarflokk þeirra og stig. Nöfn einstaklinga birtast ekki utan vinnustaðarins.
- Skipuleggjendur átaksins hafa aðgang að gögnum eftir því sem þarf til að reka átakið, svara fyrirspurnum og kanna augljós merki um misnotkun.
Persónuupplýsingar þínar eru hvorki seldar né afhentar þriðja aðila til markaðssetningar.
5. Vinnsluaðilar og hýsing
Við nýtum eftirfarandi þjónustuaðila til að reka vefinn. Þeir vinna upplýsingarnar eingöngu samkvæmt fyrirmælum okkar:
- Jökulá: hönnun, þróun og rekstur vefsins.
- Supabase: gagnagrunnur og innskráning. Gögnin eru hýst innan Evrópska efnahagssvæðisins (Frankfurt, Þýskalandi).
- Vercel: hýsing vefsins atak.raektumvitid.is.
- Resend: sending tölvupósts.
- Framer: hýsing kynningarvefsins raektumvitid.is.
Sumir þessara aðila eru bandarísk fyrirtæki og kunna að vinna tilteknar upplýsingar utan EES, til dæmis tæknilegar annálaskrár eða netföng við sendingu pósts. Slík miðlun byggir á viðeigandi verndarráðstöfunum, svo sem gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (EU-US Data Privacy Framework) eða stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnar ESB.
6. Vafrakökur og vefmælingar
- atak.raektumvitid.is notar eingöngu nauðsynlegar vafrakökur til að halda þér innskráðri/innskráðum. Án þeirra virkar vefurinn ekki og því þarf ekki samþykki fyrir þeim.
- Til að skilja notkun vefsins notum við Vercel Web Analytics (á atak.raektumvitid.is) og innbyggða vefmælingu Framer (á raektumvitid.is). Hvorug þjónustan notar vafrakökur og hvorug safnar upplýsingum sem auðkenna þig persónulega. Eingöngu samantekin tölfræði er skoðuð, t.d. fjöldi heimsókna og tegund tækis.
Engar auglýsinga- eða rakningarkökur eru notaðar.
7. Hversu lengi eru upplýsingarnar geymdar?
Upplýsingarnar eru geymdar á meðan átakið stendur yfir og í 6 mánuði eftir að því lýkur, svo hægt sé að afhenda samantektir og viðurkenningar. Að þeim tíma liðnum er persónuupplýsingum eytt eða þær gerðar ópersónugreinanlegar. Ópersónugreinanleg tölfræði, t.d. heildarfjöldi skráðra klukkustunda, getur verið geymd áfram.
Þú getur hvenær sem er óskað eftir því að aðgangi þínum og gögnum sé eytt, sjá lið 8.
8. Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
- fá upplýsingar um og aðgang að þeim persónuupplýsingum sem unnar eru um þig;
- fá rangar upplýsingar leiðréttar;
- fá upplýsingum eytt;
- andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum, eða fara fram á að hún verði takmörkuð;
- fá upplýsingar sem þú hefur látið í té afhentar á tölvutæku formi (flutningsréttur).
Sendu beiðni á hallo@raektumvitid.is. Við svörum eins fljótt og auðið er og innan mánaðar.
Ef þú telur að vinnsla persónuupplýsinga um þig brjóti gegn lögum getur þú sent kvörtun til Persónuverndar (www.personuvernd.is).
9. Breytingar
Ef stefnunni er breytt birtist uppfærð útgáfa á þessari síðu með nýrri dagsetningu. Ef breytingarnar eru verulegar látum við þátttakendur vita.