Fara beint í efni

Skilmálar þátttöku

Síðast uppfært: 15. september 2026

Með því að skrá þig til þátttöku í Ræktum vitið samþykkir þú eftirfarandi skilmála.

1. Um átakið

Ræktum vitið er hvatningarátak sem stendur yfir frá 1. október til 31. október 2026. Markmiðið er að gera símenntun að eðlilegum hluta af vinnudeginum. Þátttakendur skrá lærdóm sinn og safna stigum fyrir vinnustaðinn sinn. Vinnustaðir keppa við aðra vinnustaði í sama stærðarflokki.

Átakið er á vegum VR, LÍV og SVÞ (hér eftir „skipuleggjendur“).

2. Hver má taka þátt?

  • Öll fyrirtæki og vinnustaðir mega taka þátt, óháð atvinnugrein.
  • Allt starfsfólk má taka þátt, óháð starfshlutfalli, ráðningarformi eða stöðu.
  • Sjálfstætt starfandi einstaklingar og verktakar geta tekið þátt með því að stofna eigin vinnustað.
  • Hver vinnustaður setur sjálfur reglur um þátttöku innan sinna raða, til dæmis hvort stunda megi símenntun á vinnutíma.

3. Hvað má skrá?

Skrá má lærdóm sem eflir þekkingu, færni eða hæfni í starfi eða styður við símenntun, til dæmis að lesa fræðsluefni, hlusta á hlaðvarp, sækja námskeið, prófa nýtt verkfæri eða deila þekkingu með samstarfsfólki.

  • Lærdómurinn á að tengjast starfi eða faglegri þróun, en ekki almennri afþreyingu.
  • Skrá má sama tegund lærdóms oftar en einu sinni.
  • Aðeins lærdómur sem fer fram á tímabili átaksins, frá og með 1. október 2026, telur til stiga. Ekki er hægt að skrá lærdóm fram í tímann.

4. Stig og stigatafla

  • Stig ráðast af tíma: 5 stig fyrir hverjar 15 mínútur.
  • Hámark er 6 klukkustundir (120 stig) á dag á hvern þátttakanda.
  • Tegund lærdóms hefur ekki áhrif á stig. Hún nýtist í tölfræði.
  • Stig vinnustaðar = samanlögð stig allra þátttakenda ÷ fjöldi skráðra þátttakenda. Þannig hafa stórir og litlir vinnustaðir jöfn tækifæri innan síns flokks.
  • Vinnustaðir keppa eingöngu innan síns stærðarflokks: Lítil fyrirtæki (1–29 starfsmenn), Meðalstór (30–69) og Stór (70+).
  • Ef tveir vinnustaðir enda með jafnmörg stig deila þeir sætinu.
  • Ef þátttakandi skiptir um vinnustað á tímabilinu verða stig sem þegar hafa safnast eftir hjá upphaflega vinnustaðnum.

5. Heiðarleiki

Ræktum vitið byggir á trausti fremur en eftirliti. Við treystum því að þátttakendur skrái lærdóm sinn af heilindum.

Skipuleggjendur áskilja sér rétt til að skoða skráningar ef augljós merki eru um misnotkun eða óeðlilega hegðun. Þeir geta leiðrétt eða fjarlægt skráningar og, ef þörf krefur, vikið þátttakanda eða vinnustað úr keppni.

6. Viðurkenningar

Engin peningaverðlaun eru veitt. Viðurkenningar eru stafrænar, til dæmis merki fyrir stigahæsta vinnustað í hverjum flokki, þátttökumerki fyrir alla þátttökuvinnustaði og persónuleg samantekt í lok átaksins. Skipuleggjendur ákveða endanlega útfærslu viðurkenninga.

7. Aðgangur og vinnustaðir

  • Þú berð ábyrgð á að upplýsingar sem þú skráir séu réttar og að aðrir noti ekki aðganginn þinn.
  • Sá sem stofnar vinnustað verður stjórnandi hans á vefnum og getur samþykkt beiðnir um aðild. Hann getur einnig veitt öðrum stjórnandaréttindi.
  • Aðeins er hægt að eyða vinnustað þegar stjórnandinn er eini þátttakandinn í honum.
  • Þú getur óskað eftir því að aðgangi þínum verði eytt með því að senda póst á hallo@raektumvitid.is.

8. Persónuvernd

Um meðferð persónuupplýsinga fer samkvæmt persónuverndarstefnu Ræktum vitið.

9. Breytingar og fyrirspurnir

Skipuleggjendur geta gert breytingar á skilmálum þessum ef nauðsyn krefur og tilkynna þátttakendum um verulegar breytingar. Fyrirspurnir sendist á hallo@raektumvitid.is.